Latest Entry
Apr 26, 2012 Fréttir, Tónleikar Leave a comment
Posted by
administrator
Á laugardagskvöldið 28. apríl mun Varsjárbandalagið hita upp fyrir frönsk-Íslensku sveitina Klezmer Kaos á NASA við Austurvöll. Miðasala á www.midi.is og miðaverð er einungis 3.000 krónur.
Recent Entries
Mar 28, 2012 Uncategorized Leave a comment
Posted by
administrator
Föstudagskvöldið 30. mars mun Varsjárbandalagið stíga á stokk ásamt hinum ástsælu Spöðum á NASA við Austurvöll. Húsið opnar kl. 21.00 og Spaðar byrja upp úr klukkan 22.00. Eftir að þeir hafa spilað sér til óbóta komum við og hættum ekki fyrr en svitapollar liggja á gólfinu sökum dönsunar á staðnum.
Dec 12, 2011 Uncategorized Leave a comment
Posted by
administrator
Líkt og í fyrra munum við trylla landslýð með hljóðfæraslætti og söng. Einnig mun verða eitthvað um hamagang og læti og jafnvel fíflagang. Hlökkum til að sjá þig.
Nov 12, 2011 Uncategorized Leave a comment
Posted by
administrator
Það er okkur mikið sorgarefni að þurfa að tilkynna að Vetrarsirkus Varsjárbandalagsins verður ekki haldinn. Óviðráðanlegar ástæður liggja þar að baki, ekki ein heldur fleiri. Við vonum að við getum blásið til sirkuss aftur á nýju ári. Fylgist bara spennt með. Við verðum hins vegar á Rósenberg 30. desember með balkandúndrið okkar.
Sep 7, 2011 Fréttir Leave a comment
Posted by
administrator
Við höfum bætt við síðu hér á vefinn. Síðan heitir MEDIA og þar höfum við smellt inn nokkrum lögum til hlustunar á vefinn okkar. Enn fremur er þar myndband Einars Baldvins Árnasonar við lagið Vestmannaeyjar. Á síðunni má enn fremur finna umsögn Árna Matthíassonar um plötuna Russian Bride sem birtist í Morgunblaðinu. Enn fremur má [...]
Sep 4, 2011 Uncategorized Leave a comment
Posted by
administrator
Við erum glöð og kát þegar við tilkynnum það að lagið Russian Bride, sem Hera Björk Þórhallsdóttir syngur, er komið í 26. sæti Vinsældarlista rásar 2. Við þökkum þeim sem kusu og bendum á að það er hægt að kjósa aftur þessa vikuna. http://www.ruv.is/topp30
Sep 1, 2011 Uncategorized Leave a comment
Posted by
administrator
Sælir ágætu lesendur. Laugardagskvöldið 3. september ætlum við í Varsjárbandalaginu að halda tónleika á Café Haítí niðri við gömlu höfnina. Það væri óskaplega gaman að sjá sem flesta en staðurinn er frekar lítill þannig að það er betra að tryggja sér sæti sem fyrst. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
Jun 16, 2011 Uncategorized Leave a comment
Posted by
hallurg
Eins og áður hefur komið fram þá gefur TUTL út hljómdiskinn RUSSIAN BRIDE með Varsjárbandalaginu. TUTL hafa greitt götu hljómsveitarinnar í útgáfunni og ætla að aðstoða eitthvað við að koma sveitinni á framfæri erlendis þar sem TUTL er í mjög öflugu samstarfi við tónlistarhátíðir víða um heim. Diskurinn Russian Bride með Varsjárbandalaginu er kominn í [...]
Jun 15, 2011 Uncategorized 1 Comment
Posted by
administrator
Hljómplata Varsjárbandalagsins, Russian Bride er komin í verslanir. Á plötunni er að finna lög af nánast öllum stærðum og gerðum.TUTL í Færeyjum gefur plötuna út. Á plötunni syngur Hera Björk Þórhallsdóttir titillagið, Russian bride, og gerir það af stakri prýði og snilld. Lögin á plötunni eru ættuð frá Suðurgötunni í Hafnarfirði og langt austur fyrir [...]
Jun 13, 2011 Uncategorized Leave a comment
Posted by
administrator
Á plötunni Russian Bride er að finna lagið Vestmannaeyjar. Einar Baldvin Árnason gerði myndband við það. Vestmannaeyjar from Einar Baldvin on Vimeo.